Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 937, 118. löggjafarþing 370. mál: lánasjóður sveitarfélaga (EES-reglur, lántökur).
Lög nr. 49 7. mars 1995.
Þingskjal 937, 118. löggjafarþing 370. mál: lánasjóður sveitarfélaga (EES-reglur, lántökur).
Lög nr. 49 7. mars 1995.
Lög um breyting á lögum um Lánasjóð sveitarfélaga, nr. 35 29. apríl 1966, með síðari breytingum.
1. gr.
Á eftir 1. málsl. 6. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Stjórninni er þó ekki heimilt að gefa út og selja skuldabréf og aðrar endurgreiðanlegar skuldaviðurkenningar til almennings.2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 25. febrúar 1995.